Frumtak hefur selt allan hlut sinn í Trackwell. Aðkoma sjóðsins hefur verið farsæl og skipt sköpum fyrir rekstur og vöxt félagsins á miklu uppbyggingartímabili. Vegferðin með Trackwell hefur verið árangursrík bæði fyrir félagið og sjóðinn, Það hefur verið sérlega ánægjulegt að fylgjast með uppbyggingu félagins þar sem áherslan hefur ávallt verið á nýsköpun og framþróun.

Eftirfarandi frétt birtist á vef Viðskiptablaðsins við söluna. Nánar var fjallað um málið í Viðskiptablaðinu sem kom út í dag.

Jón Þór Gunnarsson, sem hætti sem forstjóri ferðaþjónustufyrirtækisins Arctic Adventures í sumar, hefur keypt ásamt hópi fjárfesta og starfsmanna rétt tæplega helmingshlut í hugbúnaðarfyrirtækinu Trackwell, af Frumtaki og tveimur einstaklingum. Hann vill þó ekki gefa upp fjárhæðina, en í viðskiptunum selur Frumtak allan sinn hlut, sem samkvæmt ársreikningi fyrir árið 2018 nam 32,46%.

Fjárfesting Frumtaks í hugbúnaðarfyrirtækinu í ársbyrjun 2009 var sú fyrsta hjá fjárfestingarsjóðnum, en hann var stofnaður af Nýsköpunarsjóði atvinnulífsins, viðskiptabönkunum og sex lífeyrissjóðum. Auk Jóns Þórs sem kaupir 27,2% hlut og hóps starfsmanna sem kaupa um 8% hlut, kaupir félagið Skrákur 13,4% hlut. Að því skemmtilega stafsetta fyrirtæki standa þeir Helgi Anton Eiríksson, fyrrverandi forstjóri Iceland Seafood International, Ólafur Friðrik Gunnarsson, Berglind Jóhannsdóttir, Guðmundur Hjaltason  og Ólafur Johnson.