Ankeri, sem þróar hugbúnaðarlausnir fyrir skipaiðnaðinn, hefur fengið um 300 milljóna króna fjármögnun frá Frumtaki. Hlutafjáraukningin verður nýtt til að allt að þrefalda starfsmannafjölda í vöruþróun og sölustarfi á næstu tólf mánuðum. Reiknað er með að tekjur félagsins tífaldist á næstu tveimur árum, að því er kemur fram í fréttatilkynningu.

Þá segir að Ankeri hafi þegar haslað sér völl á alþjóðlegum mörkuðum en meðal viðskiptavina er þýski skiparisinn Hapag-Lloyd.

Lausnir Ankeri gera viðskiptavinum sínum kleift að nálgast mikilvægar rekstrarupplýsingar á auðveldan hátt með það að leiðarljósi að taka hagkvæmar og sjálfbærar ákvarðanir varðandi rekstur skiptaflutninga. Félagið hefur þróað skýjalausn sem tvinnar saman hagsmuni eigenda og leigjenda skipa með bættri upplýsingagjöf, betri orkunýtingu og minni útblæstri skipaflotans. Þannig leggi Ankeri sitt af mörkum í grænni þróun og orkuskiptum heimsflotans.  

Félagið var stofnað árið 2016 af Kristni Aspelund og Leifi Kristjánssyni sem hvor um sig hafa yfir fimmtán ára reynslu í skipaiðnaðinum. Félagið hefur áður verið styrkt af Tækniþróunarsjóði og meðal hluthafa eru Nýsköpunarsjóður atvinnulífsins og Hermann Kristjánsson.

Kristinn Aspelund, framkvæmdastjóri Ankeris:

„Það eru mjög áhugaverð tækifæri í skipaiðnaðinum. Hingað til hefur stafræn þróun og sjálfvirknivæðing þar verið eftirbátur annarra greina. Eftirspurn eftir lausnum sem veita auðvelt aðgengi að nauðsynlegum gögnum til ákvarðanatöku er mikil. Í dag er algengt að gögn séu slegin inn handvirkt og upplýsingar vistaðar víða og oft í vanþróuðum kerfum. Sífellt aukin áhersla á umhverfismál og fyrirsjáanleg aukning á regluverki samhliða því felur líka í sér tækifæri fyrir okkur. Um 90% af öllum vörum eru á einhverjum tímapunkti fluttar með einhverju af 50.000 flutningaskipum heimsins. Jafnvel þótt skipaiðnaðurinn sé umhverfisvænasti máti flutninga þá má samt sem áður rekja um 3% af heildarútblæstri gróðurhúsalofttegunda til hans sem og notkun á um 300 milljón tonnum af jarðefnaeldsneyti árlega.”  

Svana Gunnarsdóttir, framkvæmdastjóri Frumtaks:

„Við vitum að sumar af stærstu áskorununum í alþjóðlegum virðiskeðjum tengjast óhagkvæmni í flutningum og stopulum tengingum upplýsingakerfa. Þetta veldur auknum kostnaði og öðru óhagræði. Hugbúnaðarlausnir Ankeris gera viðskiptavinum þess kleift að takast á við þessar áskoranir, auka hagkvæmni í rekstri og á sama tíma leggja sitt af mörkum til að draga úr neikvæðum umhverfisáhrifum skipaiðnarins. Við sjáum mikil tækifæri í lausnum félagsins.”

Frétt birtist á vef Viðskiptablaðsins