Heilbrigðistæknifyrirtækið Sidekick Health hefur tryggt sér $55 milljón Bandaríkjadala fjármögnun (e. Series B), sem samsvarar rúmlega sjö milljörðum íslenskra króna, til þess að styðja við áframhaldandi vöruþróun og vöxt, sérstaklega í Bandaríkjunum.

Nýja fjármögnin er leidd af Novator, en erlendu vísissjóðirnir Wellington Partners og Asabys Partners sem leiddu 20 milljón Bandaríkjadala fjármögnun (e. Series A) félagsins árið 2020 taka þátt, auk Frumtaks Ventures. Eitt stærsta sjúkratryggingafélag Bandaríkjanna, bætist einnig í fjárfestingahópinn samhliða vaxandi viðskiptasambandi fyrirtækjanna.

Samtals hefur Sidekick sótt rúmlega tíu milljarða króna til innlendra og erlendra vísissjóða á tæpum tveimur árum til að styðja við öran vöxt félagsins í Evrópu og Bandaríkjunum, en félagið hefur nú einnig sett up starfstöðvar í Berlín, Boston og Stokkhólmi

Starfsmannafjöldinn hefur aukist úr rúmlega 30 í 150 á tímabilinu og mest hefur aukningin verið á hér á landi, en nú starfa um 120 manns hjá félaginu í höfuðstöðvum Sidekick á Íslandi.

„Það hefur verið afar gefandi að sjá þau jákvæðu áhrif sem við höfum haft á heilsu og líðan fólks víða um heim. Teymið hefur byggt vöru sem telst með þeim bestu í heimi á sínu sviði og hefur leitt til samstarfs við ýmsa af stærstu aðilum á alþjóðlegum heilbrigðismarkaði,“ segir Tryggvi Þorgeirsson læknir, meðstofnandi og forstjóri Sidekick.

„Nýja fjármögnunin gerir okkur kleift að byggja ofan á þann trausta grunn sem við höfum nú þegar lagt, breikka úrval þeirra stafrænu helibrigðismeðferða sem við erum með í þróun og halda áfram að fá til liðs við okkur afburðafólk með víðtæka reynslu á sviði heilbrigðismeðferðar og -rannsókna, hugbúnaðargerðar, hönnunar og heilbrigðisverkfræði til þess mæta eftirspurn frá nýjum og núverandi samstarfsaðilum,” bætir hann við.

Samhliða fjármögnuninni mun Birgir Már Ragnarsson, meðeigandi í Novator, taka sæti í stjórn Sidekick. Birgir hefur víðtæka reynslu af því að vinna náið með stofnendum við að byggja upp fyrirtæki í hröðum vexti. Hann situr í stjórn fjölda vaxtarfyrirtækja fyrir hönd Novators, þar á meðal Monzo Bank, Cazoo, Zwift, Klang Games og Deliveroo.

„Við höfum tekið þátt í uppbyggingu Sidekick frá upphafi og það er einstaklega ánægjulegt að verða vitni af þeim árangri sem Sidekick-teymið hefur náð frá því að við lokuðum síðustu fjármögnunarlotu,” segir Birgir. „Landslagið í heilbrigðisgeiranum hefur breyst hratt í kjölfar COVID-19 faraldursins og Sidekick er vel í stakk búið til að leiða framþróun heilbrigðistækni á heimsvísu.“

Íslenski vísissjóðurinn Frumtak Ventures tók einnig þátt fjármögnuninni, en sjóðurinn hefur stutt dyggilega við Sidekick síðustu ár auk Tækniþróunarsjóðs, sem skipti sköpum fyrir fyrstu skref félagsins.

„Það hefur frábært að sjá Sidekick dafna og vaxa og fjárfesting Frumtaks í félaginu staðfestir trú okkar að það hafi það sem til þarf til að verða leiðandi á alþjóðavísu í stafrænum heilsutæknilausnum. Við hlökkum til samstarfsins við fjárfestahópinn á þeirri spennandi vegferð sem er framundan,” segir Svana Gunnarsdóttir, meðeigandi og framkvæmdastjóri Frumtaks.

Nánari upplýsingar um Sidekick:

Sidekick þróar heilbrigðismeðferðir til að bæta heilsu fólks með ýmsa langvinna sjúkdóma. Meðferðinni er miðlað í gegnum fjarheilbrigðiskerfi fyrirtækisins sem er skráð sem CE-merkt lækningatæki. Fyrirtækið starfar einkum með alþjóðlegum lyfjafyrirtækjum þar sem lausnin hefur verið samþætt lyfjameðferðum með góðum árangri, auk þess sem fyrirtækið vinnur með veitendum sjúkratrygginga í Bandaríkjunum.

Félagið var stofnað af tveimur læknum, þeim Tryggva Þorgeirssyni og Sæmundi Oddssyni, í þeim tilgangi að fyrirbyggja og meðhöndla lífsstílstengda sjúkdóma. Þeir töldu hefðbundnar aðferðir við lífsstílsbreytingar ekki duga til að sporna gegn mikilli aukningu í algengi langvinnra lífsstílstengdra sjúkdóma sem í dag valda 86% dauðsfalla og 70-80% heilbrigðiskostnaðar á Vesturlöndum.

Teymi sérfræðinga á heilbrigðissviði, í heilbrigðisverkfræði, hönnun og hugbúnaðargerð þróaði Sidekick-lausnina sem styður við meðferð fólks með ýmsa sjúkdóma svo sem hjarta- og æðasjúkdóma, sykursýki og bólgusjúkdóma. Rannsóknir og sjúklingaprófanir hafa sýnt að með því að tvinna lausn fyrirtækisins við hefðbundna meðferð megi bæta ýmsar útkomur svo sem þyngdar- og blóðsykurstjórn, streitueinkenni, þunglyndis- og kvíðaeinkenni, lífsgæði og dánarlíkur.

Þá styður tæknin einnig við meðferðarheldni og hjálpar fólki að skilja og takast á við sjúkdóm sinn í daglegu lífi, svo sem með fræðslu og samskiptum við aðra sjúklinga. Loks býður kerfið upp á tengingu milli sjúklinga og heilbrigðisstarfsfólks fyrir fjareftirlit með einkennum, samskipti og stuðning.

frá Sidekick