“Það hefur verið skemmtilegt að taka þátt í uppbyggingu Völku og hefur félagið sannarlega sýnt og sannað að tæknilausnir þess eiga erindi á alþjóðamarkað. Starfsmenn félagsins eiga heiður skilið fyrir þann árangur sem náðst hefur,” segir Svana Gunnarsdóttir fjárfestingastjóri Frumtaks. “Það er ánægjulegt að skilja við félagið þegar svona vel gengur og aðrir sterkir fjárfestar taka nú við keflinu.”

Nýsköpunarsjóður atvinnulífsins og framtakssjóðurinn Frumtak hafa selt samtals 37% hlut sinn í hátæknifyrirtækinu Völku og að því er kemur fram í fréttatilkynningu fékkst góður hagnaður fyrir. 

Á sama tíma og nýsköpunarsjóðirnir seldu hlut sinn nýverið var einnig hlutafjáaukning í félaginu. Nýir hluthafar með mikla reynslu og þekkingu á sjávarútvegi hafa bæst í hóp eigenda og nokkrir núverandi hluthafar juku einnig hlut sinn við þessi tímamót. Nordic Mar ehf. var ráðgjafi seljenda í söluferlinu.

Helgi Hjálmarsson, framkvæmdastjóri Völku, segir aðkomu nýsköpunarsjóðanna beggja hafa skipt sköpun fyrir vaxtarmöguleika fyrirtækisins á miklu uppbyggingartímabili. Gleðilegt sé að fjárfestingin hafi skilað sjóðunum ábata sem vonandi nýtist öðrum nýsköpunarfyrirtækjum síðar.

Nýsköpunarsjóður atvinnulífsins kom fyrst inn sem hluthafi í Völku árið 2008 og Frumtak kom að fyrirtækinu árið 2011.  

Fyrirtækið Valka var stofnað í bílskúri Helga Hjálmarssonar árið 2003 og hefur frá upphafi unnið að nýjum tæknilausnum fyrir sjávarútvegsfyrirtæki.

„Mér fannst lítið hafa gerst í þróun á tækjabúnaðar í fiskvinnslum árum saman. Í kyrrstöðu geta falist mikil tækifæri, það er að segja ef hægt er að hreyfa við hlutunum og koma nýjum hugmyndum að. Stuðningur sjóðanna skipti sköpun við það, sem og góð samvinna við atvinnugreinina. Nýjar lausnir í sjávarútvegi gera afurðir einnar helstu auðlindar Íslands enn verðmætari og um leið skapast enn frekari sóknartækifæri fyrir íslenskan iðnað við hönnun tækjabúnaðar,“ segir Helgi í tilkynningunni.

„Það var afar mikilvægt að fá sjóðina til lið við okkur á sínum tíma. Mér er efst í huga þakklæti fyrir aðkomu þeirra, stuðning og gott samstarf á tímabilinu. Með nýjum hluthöfum og fjármagni stendur félagið sterkt og stefnan sett á áframhaldandi vöxt á komandi árum.“