Frumtak upplýsti í dag um 170 milljón króna fjárfestingu í félaginu Goodlifeme AB., sem framleiðir heilsuforritið SidekickHealth, en stór hluti starfseminnar er í höndum dótturfélags þess hér á landi. Frumtak leiðir fjárfestinguna en fleiri fjárfestar taka þátt, svo sem Tennin ehf. og fleiri. SidekickHealth er hugbúnaður sem nýtir atferlishagfræði, leikjatækni og gervigreind til að greina áhættuþætti og hafa áhrif á heilsuhegðun í þeim tilgangi að draga úr algengi og alvarleika lífsstílstengdra sjúkdóma svo sem sykursýki af tegund 2, hjarta- og æðasjúkdóma.

Með því að beita grunnaðferðum atferlishagfræði ásamt gervigreind (AI) og leiðbeiningum frá Sóttvarna- og forvarnastofnun Bandaríkjanna (e. U.S. Centers for Disease Control and Prevention) er hægt að bæta umtalsvert árangur í lífsstílsmeðferð sem er í boði á sérstökum námskeiðum sem lúta að því að hjálpa fólki að forðast sykursýki og aðra lífsstílstengda sjúkdóma.

SidekickHealth hugbúnaðurinn, sem hefur náð útbreiðslu í Bandaríkjunum, Íslandi og Svíþjóð er þróaður í samstarfi við hóp sérfræðinga við leiðandi stofnanir svo sem Landspítala, Háskóla Íslands, Karolinska háskóla, Harvard háskóla og MIT háskóla, en Tryggvi Þorgeirsson, framkvæmdastjóri félagsins, er gestafyrirlesari við síðastnefndu tvær stofnanirnar þar sem hann kennir notkun atferlishagfræði við lífsstílsinngrip sem og gagnadrifna heilbrigðisþjónustu (e. data driven health). Að auki kennir Tryggvi fyrirbyggjandi læknisfræði við læknadeild Háskóla Íslands.